Fréttir
 
Fréttir
Dagskrá/Events
Myndasöfn
Stjórn
Upplýsingar
 
Tenglar
Drullusokkar
H-DC ICE
Harley-Davidson.com
MYNDIR BALDUR
MYNDIR CI
Tezpower.com
Veðurspá
Vefmyndavélar
www.yr.no



  Hog@hog.is              English
 

Mótorhjólamessa

Annar í hvítasunnu

Mótorhjólamessa kl. 20

Mótorhjólamessan er árlegur viðburður þar sem hinir ýmsu mótorhjólaklúbbar ríða fákum sínum í fylkingum til Digraneskirkju. Motorhjolamessa_032

Sjaldan koma svo mörg vélhjóla saman á einum stað svo almenningi gefst tækifæri á því að skoða fákana og spjalla við ökumenn þeirra.

Messan er ALVÖRU messa, með prédikun og altarisgöngu, svo það er ekkert slegið af í helgihaldinu, þó svo umbúnaðurinn sé sveipaður léttleika og prestarnir (sem verða að vera mótorhjólafólk) eru búnir sama klæðnaði og viðbúið er af vélhjólafólki (hefðbundnum öryggisbúnaði vélhjólamanna). Leður og Goretex er því "viðeigandi" klæðnaður.

Mótorhjólamessan er einnig samstarfsverkefni Þjóðkirkju og Hvítasunnu og hafa prestar frá báðum þessum kirkjudeildum annast um helgihald. Það er stórkostlegt að sjá svo fjölbreytilegan söfnuð koma saman til helgihalds og ekki spillir nú fyrir að þetta minnir líka á það að við erum líka til í samfélaginu og umferðinni.

Mótorhjólamessan tekur mið af ýmsum hefðum sem skapast hafa í "mótorhjólaheiminum", bæði hvað varðar tónlist og annað. Hún er því nokkuð "hrá" og gæti farið fyrir brjóstið á þeim sem leitast eftir hefðbundnara helgihaldi. 006

Mótorhjólamessan hófst í Digraneskirkju árið 2006 þegar 115 manns komu til messu á 55 vélfákum. Mótorhjólamessunni hefur aukist fylgi milli ára. Arið 2007 komu 240 manns á 170 hjólum. Arið 2008 yfirfylltist kirkjan (sem tekur 320 manns) með 380 riddurum götunnar á 230 fákum. Ári síðar (2009) komu 402 mótorhjólamenn í messu þannig að þetta stefnir í stórviðburð á þessu ári enda löngu búið að sprengja allt rými sem annars hæfir fyrir venjulegar messur.