H.O.G. CHAPTER ICELAND
Til að gefa þér hugmynd um hverskonar félagsskapur H.O.G. er þá fylgir hér örstutt lýsing með. " H.O.G. (Harley Owners Group) var stofnað 1983 af H.D. í Milwaukie í þeim tilgangi að sameina sem flesta Harley eigendur í einu félagi sem væri styrkt og stjórnað af Harley-Davidson Motor Company. þessi félagsskapur telur yfir 1 milljón félaga í dag um allan heim. Í hverju landi, eða eftir atvikum borg eða sýslu þar sem eru H.D. umboð eru svo undirfélög sem eru kölluð CHAPTER-xxxxxxx, -í okkar tilfelli CHAPTER ICELAND. Þessi félög eru "non profit" félög og eru að hluta til styrkt af H.O.G. Europe og að hluta til umboðsmanni H.D.
Félagsgjöld teljast lág, árgjald í HOG eru 69 EUR og í Chapter Iceland 5000 kr. Góðgerðarstörf eru hluti af starfsemi félagsins en að öðru leyti sameinar það Harley eigendur og gefur það Harley fólki kost á að hittast og hjóla saman eða hvað annað sem mönnum með sama áhugamál dettur í hug að gera saman."
Hverjir geta orðið félagar ?
Allir Harley-Davidson eigendur geta orðið félagar í H.O.G. CHAPTER ICELAND.
Til að kynna sér betur H.O.G. bendum við á síðu Harley Owners Group.
www.hog.com
(Uppfært 26.01.06)